Á
Laugarcafé er hægt að fá hádegisverð og kvöldverð ásamt fjölbreyttu
úrvali léttra heilsurétta, samloka og drykkja allan daginn. Til
dæmis má nefna Booztbarinn þar sem mikið úrval af skyr og
próteindrykkjum ásamt safa gerðan úr ferskum ávöxtum og grænmeti.
Steikarahlaðborð er alla laugardaga frá 11:30 - 14:00 og þar er boðið upp á
súpu, heita rétti, salöt, heimabakað brauð, ferska ávexti, gott úrval
af meðmæti og kaffi. Við bjóðum
einnig upp á rétt dagsins alla virka daga ásamt súpu og ferskum fiski
sem er daglega í nýjum búningi. Áhersla er lögð á fersk hráefni og
hóflegt verð.
Tilvalið
er fyrir fyrirtæki og aðra hópa að koma í Laugar og njóta matar og
drykkjar á Laugar Café. Nýta sér fundaraðstöðu okkar og veislusal á 2.
hæð eða skella sér í baðstofuna og borða saman í veitingasal okkar
þar. Fjölbreyttur mat- og vínseðill er í boði, einnig setjum við
saman hópmatseðla fyrir þá sem vilja og bjóðum upp á tapasrétti sem
hafa notið mikilla vinsælda.
Kaffibarstofa
með útsýni yfir Laugardalslaug er á Laugar Café, þar geta gestir gleymt
sér yfir íslenskum og erlendum tímaritum, gluggað í spennandi bækur og
notið góðra drykkja
Laugar
Café er umfram allt aðgengilegur staður sem er öllum opinn og tilvalið
er að koma þar við eftir gönguferð í Laugardalnum, góðan
sundsprett, átök í heilsuræktinni og eða notalega stund í Baðstofunni
eða Laugar Spa.
Við
leggjum okkur fram við að geta þjónað öllum, hvort sem
þú vilt grípa með þér bita eftir æfingu eða verja góðum tíma
með okkur.
Verið ávallt velkomin