Laugar er fyrsta flokks heilsulind með baðstofu að evrópskri fyrirmynd þar sem slökunar- og lækningamáttur vatnsins er í hávegum hafður. Misheitar blautgufur og þurrgufur með mismunandi ilmum, nuddpottur með jarðsjó, heit og köld sjóböð og sérstakar fótalaugar. Sex metra breiður foss sem hægt er að baða sig undir. Fossinn er hannaður af Sigurði Guðmundsyni listamanni.
Í baðstofunni er alls sex gufur hver með sínu þema. Hver gufa hefur sinn einstaka ilm og má m.a. anda að sér sítrónu, piparmyntu og lavender svo eitthvað sé nefnt. Ákveðið þema einkennir þær og þar má m.a. heyra fugla- og lækjarnið, upplifa stjörnuhvolfið sem og sólarupprisu eða hverfa til austurrísku bjálkakofanna.